Smáhýsi / Glamping

Smáhýsin eru staðsett í Herjólfsdal, höfum upp á að bjóða tvær týpur af smáhýsum.  

1. Tunnurnar sem hefur að geyma tvö rými annars vegar svefnrými fyrir tvo og hins vegar stofu, með þægilegum og fallegum stólum.  

2. A-hýsin eru eitt rými og þau eru einnig fyrir tvo.  

Sjá verðskrá hér að neðan.

Bæði Tunnurnar og A-hýsin eru fallega innréttuð með "Home sweet home" yfirbragði.  Rafmagn er í húsunum en hvorki hreinlætisstaða né rennandi vatn.  Ískápur er í öllum smáhýsunum. 

Á tjaldsvæðinu er þjónustuhús með 4 salernum, 5 sturtur, eldunaraðstöðu, þvottavél og þurrkara. Sturtan er innifalin í verði.  Leiktæki eru í Dalnum fyrir börnin.

Stutt í sundlaugina og golfvöllurinn hinu megin við túnið. Hundar eru bannaðir í Herjólfsdal. Frábærar gönguleiðir og hægt að ganga á Dalfjallið sem er ekki svo erfitt og skoða Lundann í leiðinni.

Verð:

  • Tunnurnar 11.900 kr sólarhringurinn. Sængur ekki innifaldar í verði.
    > Leiga á sæng+kodda+sængurfatnaði er 1.600 kr
  • A-Hýsi 11.900 krónur sólarhringurinn.  Sængurpakki ekki innifalið í verði.
    > Leiga á sæng+kodda+sængurfatnaði er 1.600 kr

Nánari upplýsingar í síma 897-9010